WHO, Alþjóðaheilbrigðisstofnunin, skilgreinir afleiðingar umferðaslysa sem eitt stærsta heilbrigðisvandamál sem heimurinn stendur frammi fyrir í dag. Í ljósi þessa var ákveðið að aðildarlönd SÞ haldi sérstaka alþjóðlega umferðaöryggisviku dagana 23. - 29. apríl og vekja með því athygli fjölmiðla, stjórnmálamanna og sérstaklega ungs fólks á þeim miklu fórnum sem eru færðar í umferðinni. Gert er ráð fyrir að umferðaöryggisvika verði haldin á þriggja ára fresti og er þetta sú fyrsta.
Tilgangur umferðaöryggisvikunnar er:
- Að fá leiðtoga G8 hópsins og aðildarlanda Sameinuðu þjóðanna að samþykkja pólitíska stefnumörkun til upprætingar á umferðaslysum í heiminum.
- Að veitt sé 300 milljónum dollara á 10 árum til eflingar umferðaöryggi í þróunarlöndum.
- Að við úthlutun þróunaraðstoðar sé að minnsta kosti 10% af fjármagni þess notað í fjármögnun aukins umferðaöryggis.
- Að efla vitund fjölmiðla, stjórnmálamanna og ungra ökumanna fyrir umferðaöryggi.
Vikan nú er undir kjörorðinu ¿Road Safety is no Accident¿. Hún er skipulögð af Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni í samvinnu við UNECE, Efnahagssamvinnunefnd Sameinuðu þjóðanna fyrir Evrópu. Samgönguráðuneytið, Umferðarstofa, Umferðarráð og aðildarfélög þess hafa skipulagt fjölbreytta dagskrá frá mánudegi til sunnudags og sjá má hér neðar á síðunni.
Dagskrá Umferðaröryggi skólabarna Horfum fram á veginn (PDF)
Fækkun umferðaslysa = aukin lífsgæði
Árið 2005 gerðu milljónir manna kröfu um útrýmingu fátæktar í heiminum. Þjóðarleiðtogar G8 hópsins, samtök átta stærstu efnahagsvelda heims, brugðust við með ágætum árangri. Lord Robertson formaður alþjóðanefndar SÞ um umferðaöryggi segir að leiðtogar G8 hafi fljótt gert sér grein fyrir því að vegna þess mikla kostnaðar sem fylgir umferðaslysum í þróunarlöndunum gæti sá árangur sem náðist í baráttunni gegn fátækt fljótt orðið að engu ef ekki verður snúið við þeirri óheillaþróun sem fylgir ört vaxandi fjölda umferðaslysa. U.þ.b. 85% allra umferðaslysa verða í þróunarlöndum og fátækari löndum heims. Talið er að umferðaslys á Íslandi kosti á bilinu 21 ¿ 29 milljarðar króna á ári. Í flestum tilfellum eru orsakir alvarlegra umferðaslysa áhættuhegðun ökumanna og því er ljóst að mikilvægur þáttur í því að koma í veg fyrir slysin er breytt viðhorf og ábyrgari hegðun í umferðinni.
Barn deyr í umferðinni á þriggja mínútna fresti
Á hverjum degi látast um 3000 manns í umferðaslysum í heiminum. Það er rétt rúmlega sami fjöldi og fórst í árásinni á World Trade Center í New York. Í heiminum deyja u.þ.b. 500 börn á hverjum degi í umferðaslysum. Það þýðir að á 3ja mínútna fresti deyr barn í umferðinni í heiminum. Samkvæmt því má gera ráð fyrir að u.þ.b. 1500 börn slasist alvarlega eða eitt barn á mínútu.
Tengingar inn á erlent efni tileinkað Umferðaöryggisvikunni
- Heimasíða WHO alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar sem stendur að baki Umferðaöryggisvikunni.
- Hér gefur að líta heimasíðuna Make Roads Safe en á henni má finna fjölda upplýsinga og áhugaverða umfjöllun í tengslum við vikuna.
- Viðtöl við Kofi Annan, Michael Schumacher, Lord Robertson og fleiri sem koma að þessu átaki. M.a. eru viðtöl við aðstandur fórnarlamba o.fl.
- Skýrsla um umferðaöryggi í heiminum í dag.
- Hér má lesa kynningarefni þar sem fjallað er um tilgang vikunnar og markmið.