Efst á síðu

Aðalleiðakerfi:

Efst á síðu

Efni síðu:

Ökuréttindi

Flokkar ökuréttinda

Ökuskírteini frá 15. ágúst 1997
Flokkar, helstu tákntölur og skilgreining ökuréttinda

Ökutæki réttindaflokka

Flokkur / tákntala Ökuréttindi
A
efri lína
Veitir rétt til að stjórna:
litlu bifhjóli, en undir það flokkast:
  1. tvíhjóla bifhjól án hliðarvagns þar sem hlutfall vélarafls og eigin þyngdar fer ekki yfir 0,16 kW/kg. Þá má vélarafl bifhjólsins ekki fara yfir 25 kW,
  2. tvíhjóla bifhjól með hliðarvagni þar sem hlutfall vélarafls og eigin þyngdar fer ekki yfir 0,16 kW/kg,
  3. bifhjól á þremur, fjórum eða fleiri hjólum,
  4. létt bifhjól og
  5. torfærutæki.
A
neðri lína
Veitir rétt til að stjórna:
stóru bifhjóli, en undir það flokkast:
  1. ökutæki undir litlu bifhjóli hér fyrir ofan,
  2. tvíhjóla bifhjól án hliðarvagns þar sem hlutfall vélarafls og eigin þyngdar fer yfir 0,16 kW/kg, eða vélarafl fer yfir 25 kW og
  3. tvíhjóla bifhjól með hliðarvagni þar sem hlutfall vélarafls og eigin þyngdar fer yfir 0,16 kW/kg.
     
B Veitir rétt til að stjórna:
  1. fólksbifreið með leyfða heildarþyngd 3.500 kg eða minna og skráð fyrir 8 farþega eða færri, auk ökumanns,
  2. sendibifreið með leyfða heildarþyngd 3.500 kg eða minna,
  3. fólks- eða sendibifreið með tengdan eftirvagn / tengitæki sem er 750 kg eða minna að leyfðri heildarþyngd,
  4. fólks- eða sendibifreið með tengdan eftirvagn / tengitæki sem er meira en 750 kg að leyfðri heildarþyngd enda sé leyfð heildarþyngd beggja ökutækja 3.500 kg eða minna og leyfð heildarþyngd eftirvagnsins/tengitækisins ekki meiri en eigin þyngd dráttartækisins,
  5. dráttarvél,
  6. vinnuvél,
  7. léttu bifhjóli,
  8. bifhjóli á þremur, fjórum eða fleiri hjólum og
  9. torfærutæki, s.s. vélsleða.
BE Veitir rétt til að stjórna:
samtengdum ökutækjum þar sem dráttartækið er í flokki B og leyfð heildarþyngd eftirvagns eða tengitækis er meiri en 750 kg.
C Veitir rétt til að stjórna:
  1. bifreið sem er meira en 3.500 kg að leyfðri heildarþyngd og skráð fyrir 8 farþega eða færri, auk ökumanns og
  2. bifreið skv. 1. tölul., með tengdan eftirvagn / tengitæki sem er ekki meira en 750 kg að leyfðri heildarþyngd.
C
74
Veitir rétt til að stjórna:
bifreið, sem er ekki meira en 7.500 kg að leyfðri heildarþyngd. Við bifreið í þessum flokki má tengja eftirvagn / tengitæki sem er ekki meira en 750 kg að leyfðri heildarþyngd. (Undirflokkur C1).
CE
Veitir rétt til að stjórna:
samtengdum ökutækjum með vörubifreið og eftirvagni / tengitæki sem er meira en 750 kg að leyfðri heildarþyngd.
CE
(76)
Veitir rétt til að stjórna:
ökutæki í flokki C með leyfðri heildarþyngd 7.500 kg eða minna (C1) með tengdan eftirvagn / tengitæki sem er meira en 750 kg að leyfðri heildarþyngd, enda sé leyfð heildarþyngd beggja ökutækja 12.000 kg eða minna og leyfð heildarþyngd eftirvagnsins / tengitækisins ekki meiri en eigin þyngd dráttartækisins. (undirflokkur C1E).
D Veitir rétt til að stjórna:
  1. bifreið skráð fyrir fleiri en 8 farþega auk ökumanns,
  2. bifreið, skv. 1. tölul., með tengdan eftirvagn / tengitæki sem er 750 kg eða minna að leyfðri heildarþyngd og
  3. liðvagni til fólksflutninga.
D
(75)
Veitir rétt til að stjórna:
hópbifreið skráð fyrir 16 farþega eða færri auk ökumanns. Við bifreið í þessum flokki má tengja eftirvagn / tengitæki sem er ekki meira en 750 kg að leyfðri heildarþyngd. (Undirflokkur D1).
DE Veitir rétt til að stjórna:
samtengdum ökutækjum með hópbifreið og eftirvagni / tengitæki sem er meira en 750 kg að leyfðri heildarþyngd.
DE
(77)
Veitir rétt til að stjórna:
ökutæki í flokki D skráð fyrir 16 farþega eða færri auk ökumanns (D1) með tengdan eftirvagn / tengitæki sem er meira en 750 kg að leyfðri heildarþyngd, enda sé:
  1. leyfð heildarþyngd beggja ökutækja 12.000 kg eða minna og leyfð heildarþyngd eftirvagnsins / tengitækisins ekki meiri en eigin þyngd dráttartækisins og
  2. eftirvagninn / tengitækið ekki notað til fólksflutninga.
(Undirflokkur D1E)
M Veitir rétt til að stjórna:
léttu bifhjóli með slagrými ekki yfir 50 sm3 og ekki hannað til hraðari aksturs en 45 km.
T Veitir rétt til að stjórna:
dráttarvél í umferð á alfaravegi.
95 Atvinnuréttindi ökumanns.
400 Veitir rétt til farþegaflutninga í atvinnuskyni á fólksbifreið. Réttinda aflað frá og með 1. mars 1988 án hópbifreiðaréttinda (flokks D). Skráð fyrir 8 farþega eða færri.
425 Veitir rétt til farþegaflutninga í atvinnuskyni á hópbifreið.
450 Veitir rétt til farþegaflutninga í atvinnuskyni á fólksbifreið og hópbifreið.
500 Skírteinishafi er löggiltur ökukennari vegna réttindaflokksins B.
525 Skírteinishafi er löggiltur ökukennari vegna réttindaflokkanna A og B.
530 Skírteinishafi er löggiltur ökukennari vegna réttindaflokkanna B, C og E (Ökukennararéttinda ti réttindaflokks B aflað fyrir 2000).
540 Skírteinishafi er löggiltur ökukennari vegna réttindaflokkanna A, B, C og E (Ökukennararéttinda til réttindaflokks B aflað fyrir 2000 og sérstaklega vegna réttindaflokks A).
550 Skírteinishafi er löggiltur ökukennari vegna réttindaflokkanna B, C, D og E.
575 Skírteinishafi er löggiltur ökukennari vegna réttindaflokkanna A, B, C, D og E.


Efst á síðu

Símanúmer og aðrar upplýsingar :

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Kt.: 660802-3120 - Afgreiðslutími 08:00 - 16:00


AA +A ++