Ökuréttindi
Námskrá fyrir almenn ökuréttindi. Flokkur B
8. febrúar 2010
Ný námskrá fyrir almenn ökuréttindi, flokkur B, fólksbifreið/sendibifreið tók gildi 1. febrúar 2010. Hún er unnin í nánu samstarfi Ökukennarafélags Íslands og Umferðarstofu.
Um leið féll úr gildi eldri námskrá sem staðfest var af ráðherra 29. desember 1999.
Ökuskólar og ökukennarar skulu endurskipuleggja kennslu í samræmi við breytingar í námskrá fyrir 1. maí 2010. Lögð er áhersla á að kennslumarkmið séu í samræmi við skipulag námskrár.
- 1. apríl; ökuskólar skulu hafa sent Umferðarstofu endurskoðaðar kennsluáætlanir í samræmi við námskrána.
- 1. maí; ökuskólar hefja kennslu í samræmi við kennsluáætlun sem hefur verið yfirfarin og samþykkt af Umferðarstofu
Æfingaakstur með leiðbeinanda. Kjósi ökunemi að fara í æfingaakstur þarf hann að hafa lokið fyrsta hluta bóklega námsins (Ö1) og u.þ.b. 10 kennslustundum í verklegu námi.
Fjöldi lágmarkstíma er aukinn um leið og gerð er breyting á núverandi skipulagi ökunámsins.
- Bóklegar kennslustundir eru 25 og skiptast í; 12 í Ö1, 10 í Ö2 og 3 í Ö3.
- Kennslustundir í bifreið eru 17 og þar af eru tvær í ökugerði.
Kennsla í ökugerði. Ökunemi sem hefur nám frá og með 1. janúar 2010 skal ljúka námi í ökugerði. Miðað er við fyrsta verklega ökutíma með ökukennara. Kennsla í ökugerði
- er nefnd Ö3 og felur í sér að lágmarki 3 kennslustundir í stofu og tvær kennslustundir í bifreið
- má ekki fara fram fyrr en ökunemi hefur lokið fyrsta og öðrum hluta bóklegs náms (Ö1 og Ö2) og sem nemur 14 verklegum kennslustundum hjá ökukennara hið minnsta
- er miðuð við að henni sé lokið fyrir verklegt ökupróf, en hún má í undantekningatilvikum fara fram fyrir umsókn um endurnýjun bráðabirgðaskírteinis.
Með námskránni eru sett fram námsmarkmið er lúta að sérhæfðri kennslu í ökugerði. Kennslan felur í sér samþætta bóklega og verklega ökukennsla með því markmiði að auka skilning ökunemans á áhættuþáttum umferðarinnar, s.s. breytilegu veggripi, takmarkaðri mannlegri getu o.fl. Kennslan fer fram í viðurkenndum ökugerðum og er lögð áhersla á að ökuneminn sé virkur í öllu kennsluferlinu. Meginviðfangsefni kennslunnar er eigin reynsla ökunemans af því sem gert er og ályktanir hans í kjölfarið.
Á næstu misserum þurfa ökunemar því ýmist að fullnægja kröfu um að fá kennslu í ökugerði eða ekki, háð því hvenær nám var hafið (fyrsti ökutíminn). Ennfremur geta þeir lokið kennslu í ökugerði fyrir eða eftir ökupróf. Því er nauðsynlegt að setja ákveðnar og einfaldar reglur um lágmarkskennslu ökunema fyrir ökupróf:
Ökupróf. Áður en próf fer fram á ökunemi að lágmarki að hafa lokið eftirtöldum kennslustundum og náð þekkingar- og færnimarkmiðum námskrárinnar:
- Skriflegt próf:
- Ö1: 12 kennslustundir og Ö2: 12 kennslustundir ef námi í ökugerði er ekki lokið eða
- Ö1: 12 kennslustundir, Ö2: 10 kennslustundir ásamt kennslu í ökugerði (3 kennslustundir í stofu og 2 kennslustundir í bifreið) og
- 14 ökutímar.
- Verklegt próf:
- 16 ökutímar ef námi í ökugerði er ekki lokið eða
- 15 ökutímar ásamt kennslu í ökugerði (3 kennslustundir í stofu og 2 kennslustundir í bifreið).
Sérstök athygli er vakin á kröfu um 14 verklegar kennslustundir fyrir skriflegt próf.
Prófdómari á að kanna hvort reglum um áskilið ökunám er fylgt áður en próf fer fram og notar hann ökunámsbóks til þess. Ný ökunámsbók sem tekur mið af nýrri námskrá fer í dreifingu fljótlega.Námskrá fyrir bifhjólaréttindi. Flokkar A, A1 og M
Námskrár fyrir undirflokka aukinna ökuréttinda. C1, D1, C1E, D1E og BE
Námskrár fyrir flokka aukinna ökuréttinda. C1, D1, C1E, D1E, farþegaflutningar í atvinnuskyni fyrir flokk B og D og vöruflutningar í atvinnuskyni fyrir flokk C
Námskrá fyrir almennt nám til aukinna ökuréttinda (612 KB)
Námskrá fyrir eftirvagnaréttindi, flokkur CE/DE (495 KB)
Námskrá fyrir hópbifreiðaréttindi, flokkur D farþegaflutningar í atvinnuskyni (525 KB)
Námskrá fyrir leigubifreiðaréttindi, flokkur B farþegaflutningar í atvinnuskyni (369 KB)
Námskrá fyrir vörubifreiðaréttindi, flokkur C (387 KB)



