Umferðaröryggi
2006
Notaðu bílbelti
Hér er á ferðinn útvarpsauglýsing sem gengur út á áróður fyrir notkun bílbelta. Við gerð þessarar auglýsingar var stuðst við norska auglýsingu sem vegagerðin þar í landi lét gera og fékk Umferðarstofa leyfi hjá þeim til að útfæra hugmyndina fyrir íslenskar aðstæður. Norska herferðin heitir „Heaven can wait” og hefur vakið verðskuldaða athygli.
Það er ljóst að líkurnar á því að slasast alvarlega eða láta lífið í umferðinni eru margfalt sinnum meiri meðal þeirra sem ekki nota bílbelti. Í auglýsingunum er því lögð áhersla á notkun bílbelta hvort sem um er að ræða farþega eða ökumann því beltin bjarga.
Auglýsingastofan Hvíta húsið annaðist hugmyndavinnu og útfærslu auglýsingarinnar en Spark ehf. sá um framleiðslu.



