Umferðaröryggi
2006
Gaman að sjá þig!
| |
Það reynist oft erfitt að fá einstaklinga á vissu aldursskeiði til að nota endurskinsmerki þótt ljóst sé að notkun þeirra getur í mörgum tilfellum skilið á milli lífs og dauða. Með herferðinni „Gaman að sjá þig” var reynt að fá unglinga og börn á aldrinum frá 10 til 16 ára til að nota endurskinsmerki með því einfaldlega að gera notkun þeirra töff og þ.a.l. eftirsóknaverða fyrir markhópinn. Óhætt er að segja að ætlunarverkið hafi tekist mjög vel og var eftirspurnin eftir merkjunum langt umfram það sem bjartsýnustu menn höfðu þorað að vona. Hér má sjá auglýsingu sem sýnd var bæði í sjónvarpi og í kvikmyndahúsum og var henni ætlað að ýta enn frekar undir notkun endurskinsmerkjanna. Þetta verkefni var unnið í samstarfi við Glitni en auglýsingastofan Hvíta húsið sá um hönnun endurskinsmerkjanna og hugmyndavinnu auglýsingarinnar. |
Notaðu Bílbelti!
| |
Hér má sjá sjónvarpsauglýsingu sem gengur út á áróður fyrir notkun bílbelta. Við gerð þessarar auglýsingar var stuðst við norska auglýsingu sem vegagerðin þar í landi lét gera og fékk Umferðarstofa leyfi hjá þeim til að útfæra hugmyndina fyrir íslenskar aðstæður. Norska herferðin heitir „Heaven can wait” og hefur vakið verðskuldaða athygli. Það er ljóst að líkurnar á því að slasast alvarlega eða láta lífið í umferðinni eru margfalt sinnum meiri meðal þeirra sem ekki nota bílbelti. Í auglýsingunum er því lögð áhersla á notkun bílbelta hvort sem um er að ræða farþega eða ökumann því beltin bjarga. Auglýsingastofan Hvíta húsið annaðist hugmyndavinnu og útfærslu auglýsingarinnar en Spark ehf. sá um framleiðslu. |
GSM - góða helgi
Umrædd auglýsingaherferð er sérstaklega beint að ungu fólki. Hún sýnir atburðarás þar sem unglingar í bíl koma við sögu. Tónlistin er í botni og sjónarhornið er ur GSM síma, sem einn farþeganna er með stilltan á videóupptöku. Við heyrum samtal sem á sér stað í bílnum. Af samtalinu og af upptökunni má álykta að áfengi sé haft um hönd, glannalegur akstur og engin bílbelti í notkun. Þessi bílferð endar illa.



