Efst á síðu

Aðalleiðakerfi:

Efst á síðu

Efni síðu:

Umferðaröryggi

Sjónvarpsauglýsingar

2007

Hraðinn drepur - í alvörunni

Rammi úr sjónvarpsauglýsinguni: Hraðinn drepu - í alvörunni!   

Auglýsingaherferðin ¿Hraðinn drepur - í alvörunni¿ er að stærstum hluta teiknuð hreyfimynd sem telst nýbreytni við gerð auglýsingaherferða Umferðarstofu. Herferðinni er ætlað að vekja ökumenn til umhugsunar um ábyrgð sína í umferðinni þannig að þeir geri sér grein fyrir því að í raunveruleikanum er ekki hægt að hverfa frá misgjörðum sínum með því að ýta á ¿enter¿ eða velja ¿ replay¿ til að byrja leikinn aftur fullfrískur og fjörugur. Í umferðinni deyr fólk og slasast í alvörunni. Auglýsingastofan Hvíta húsið annaðist hugmyndavinnu en gerð teiknimyndarinnar var í höndum ¿I love Dust¿ fyrirtækisins í Bretlandi.

Bara einn

Rammi úr sjónvarpsauglýsinguni: Bara einn!   

Ætli einhverjum finnist í lagi að kennari, flugumferðarstjóri, tannlæknir eða kranastjóri neyti áfengis við vinnu sína með alla þá ábyrgð sem því fylgir? Án efa eru það fáir ef einhverjum sem finnst það í lagi. Þrátt fyrir það eru u.þ.b. 50 þúsund Íslendingar þeirrar skoðunar að það sé í lagi að fara út að keyra eftir að hafa neytt eins áfengs drykks skv. niðurstöðum rannsóknar sem Umferðarstofa hefur staðið fyrir. Í þessari auglýsingaherferð er verið að vekja ökumenn til umhugsunar um alvarleika þess að aka undir áhrifum áfengis – jafnvel þótt aðeins hafi verið dreypt á einu glasi. Það er undirstrikað að ábyrgðin getur verið síður minni að vera ökumaður en flugumsjónarmaður og það ættu ökumenn að hafa í huga þegar þeir velta því fyrir sér hvort það sé í lagi að stjórna ökutæki eftir neyslu áfengis. Auglýsingin var unnið í samstarfi við Vinbúð en auglýsingastofan Hvíta húsið sá um hugmyndavinnu auglýsingarinnar en Sagafilm annaðist framleiðslu.



Ef þig vantar spilarana til að horfa á auglýsingarnar, þá er hægt að finna þá hér:

Quicktime 7   Windows media player 11

Efst á síðu

Símanúmer og aðrar upplýsingar :

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Kt.: 660802-3120 - Afgreiðslutími 08:00 - 16:00


AA +A ++