Umferðaröryggi
Málþing 2005 um unga ökumenn
Umferðarstofa hélt málþing þann 23. nóvember 2005 um unga ökumenn. Á þinginu voru m.a. ökukennarar, fulltrúar í Umferðarráði, lögreglumenn, starfsmenn tryggingarfélaga, kennarar, foreldrar og ungir ökumenn ásamt fjölda áhugamanna um umferðaröryggismál. Fjallað var um hugsanlegar ástæður áhættuhegðunar meðal ungra ökumanna en auk þess var velt upp hugmyndum um hvernig hægt sé að uppræta slíka hegðun.
Með því að smella á nöfn flytjanda hér að neðan má komast inn á nokkur þeirra erinda sem flutt voru á málþinginu.
Af hverju taka ungir ökumenn áhættu í umferðinni? Sigurður Helgason verkefnastjóri Umferðarstofu,
Slys ungra ökumanna. Kjartan Þórðarson sérfræðingur hjá Umferðarstofu
Hversvegna taka menn áhættur í umferðinni? Holger Torp sérfræðingur hjá Umferðarstofu og sálfræðingur
Hvað hefur áunnist? Guðbrandur Bogason formaður Ökukennarafélags Íslands,
Ungir ökumenn. Rúnar Ólason fulltrúi ungra ökumanna,
Hvað er til ráða? Örn Kr. Arnarson ökukennari,
Ofsaakstur ungra ökumanna. Hvað er til ráða? Jón Ólafsson rekstrarfræðingur, hjá Sambandi íslenskra tryggingarfélaga.



