Umferðaröryggi
föstudagur 19. mars 2010
Of mikill hraði á Vífilsstaðavegi
Brot 38 ökumanna voru mynduð á Vífilsstaðavegi í Garðabæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vífilsstaðaveg í norðurátt, við Löngulínu. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 147 ökutæki þessa akstursleið og því ók um fjórðungur ökumanna, eða 26%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Hlutfallslega jafn margir brutu af sér við mælingar á sama stað fyrir ári síðan. Meðalhraði hinna brotlegu var 69 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Tíu óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 78.
föstudagur 19. mars 2010
Þungatakmarkanir víða um land
Þungatakmarkanir eru víða um land. Nánari upplýsingar má fá á heimasíðu Vegagerðarinnar og í síma 1777.
föstudagur 19. mars 2010
Litlir sakleysislegir hlutir geta verið stórhættulegir
Það eru mörg dæmi um að litlir og að því er virðast sakleysislegir hlutir sem liggja lausir í bílum hafi við árekstur flogið af stað og valdið alvarlegum slysum á fólki. Sama á við um laus gæludýr sem sjálf geta stórslasast og slasað aðra við árekstur. Fyrir þau eru til sérstök öryggisbelti og búr sem borgar sig að nota. Það er nánast undantekningarlaust hægt að koma í veg fyrir þessi slys með því að setja allt sem er lauslegt í farangursgeymslu eða skorða það, þannig að ekki sé hætta á að það kastist til við árekstur.
föstudagur 19. mars 2010
Hægri forgangur ekki virtur
Það er töluvert um það að ökumenn virða ekki svonefnda hægri reglu á gatnamótum þar sem engin biðskylda eða stöðvunarskylda gildir. Slíkar aðstæður eru algengar í íbúðarhverfum og ástæða til að árétta það að á gatnamótum þar sem engin biðskylda eða stöðvunarskylda er ber ökumönnum að stöðva fyrir ökutæki sem er þeim á hægri hönd. Sá sem er á hægri hönd á forgang.



