Upplýsingatorg
Upplýsingar um eigin ökutæki
Einstaklingar geta skoðað eigin ökutæki og ferilskrár þeirra hér á vef Umferðarstofu Til að nálgast upplýsingarnar þarf að nota veflykil Ríkisskattstjóra eða rafræn skilríki.
Upplýsingar um öll ökutæki og tölfræði
Umferðarstofa er ábyrgðaraðili að ökutækjaskrá og ákveður tilgang með vinnslu upplýsinga úr skránni, þann búnað sem notaður er, aðferð við vinnsluna og aðra ráðstöfun upplýsinganna. Umferðarstofa annast miðlun á upplýsingum úr ökutækjaskrá til vinnsluaðila. Vinnsluaðili er sá sem hefur gert samning við Umferðarstofu um vinnslu upplýsinganna og miðlun þeirra áfram til notenda. Með vinnslu er átt við sérhverja aðgerð eða röð aðgerða þar sem unnið er með upplýsingar, hvort heldur sem vinnslan er handvirk eða rafræn.
Aðilar með samning um sölu gagna úr ökutækjaskrá
- Aðalskoðun
- Bílgreinasambandið
- Frumherji hf.
- Keldan
- Krókur Bílastöð
- Lánstraust hf.
- Markaðsráð
- Markhópar ehf.
- Teris ehf.
- Rögg ehf.
- Skýrr hf.
- Veita lögfræðiþjónusta ehf.



