Efst á síðu

Aðalleiðakerfi:

Efst á síðu

Efni síðu:

Umferðaröryggi

Sjónvarpsauglýsingar 2009

Notum bílbeltin - alltaf

Það eru margir sem halda að það sé allt í lagi að sleppa því að setja á sig öryggisbelti ef ökuhraðinn er lítill og vegalengdin stutt. Þetta er það algengur misskilningur að mikilvægt er að leiðrétta hann.

Hér á landi er til dæmi um að ökumaður var í lífshættu eftir árekstur á 50 km hraða vegna þess að hann notaði ekki öryggisbelti. Með auglýsingunum ¿Notum bílbeltin - alltaf" er verið að undirstrika mikilvægi þess að öryggisbeltin séu notuð sama hve hægt eða hratt er ekið.

Auglýsingarnar "Notum bílbeltin - alltaf" gera mjög raunhæfan samanburð á því sem gerist við árekstur án öryggisbeltis og afleiðingum þess að falla til jarðar úr mismikilli hæð og lenda á jörðinni á 7, 20, 30 og 55 km hraða án öryggisbúnaðar. Umferðarstofa lét framleiða auglýsingarnar í samstarfi við tryggingarfélagið VÍS. Auglýsingastofan Hvíta Húsið vann hugmyndavinnu og hönnun en Filmus sá um framleiðslu.

Auglýsing 1

Auglýsing 2

Auglýsing 3

Sá sem flöskustútur lendir á

Í apríl 2009 hóf Umferðarstofa ásamt Vínbúðunum að birta auglýsingaherferð á netmiðlum og í útvarpi sem heitir "Sá sem flöskustúturinn lendir á".

Með átakinu er ökumönnum gerð grein þeim afleiðingum sem ákvörðunin um að aka eftir neyslu áfengis getur haft. Mikill fjöldi fólks hefur þurft að upplifa alvarlegar afleiðingar ölvunaraksturs og sú ákvörðun að aka eftir neyslu áfengis eða annarra vímuefna getur komið niður á ástvinum, heilsu, framtíð, mannorði, frelsi og fjárhag viðkomandi.

Með því að snúa flöskunni er hægt að sjá þá hvernig þessir mikilvægu þætti geta breyst til verri vegar við það eitt að aka eftir neyslu áfengis. Hugmyndin að þessari herferð kom frá auglýsingastofunni Fíton en þeir sáu jafnframt um framleiðslu hennar.


Efst á síðu

Símanúmer og aðrar upplýsingar :

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Kt.: 660802-3120 - Afgreiðslutími 08:00 - 16:00


AA +A ++