Efst á síðu

Aðalleiðakerfi:

Efst á síðu

Efni síðu:

Umferðaröryggi

Svefn og þreyta - fjórða algengasta orsök alvarlegra umferðarslysa

Á árunum 1998-2006 urðu 10 banaslys af völdum þess að ökumaður sofnaði undir stýri og í þeim létust 16 manns. Í þessum tilfellum leiddi rannsókn það í ljós að aðal orsök slysins var það að ökumaður sofnaði við akstur.

Þessu til viðbótar voru 11 banaslys í umferðinni á sama tímabili þar sem svefn og þreyta voru orsakavaldar ásamt öðrum þáttum. Í þeim slysum létust 11 manns. Talið er að svefn og þreyta sé fjórða algengasta örsök alvarlegra umferðarslysa.

Umferðarstofa hefur útbúið sérstaka heimasíðu www.15.is þar sem fræðast má um með hvaða hætti er komið í veg fyrir þessi slys og einnig er þar að finna upplýsingar um einkenni kæfisvefns og annarra kvilla sem leitt geta til þreytu og svefns við akstur.

Sjá má sjónvarpsauglýsingu og fræðslumynd sem Umferðarstofa hefur látið gera af þessu tilefni hér: http://15.is/id/4651.

Fræðslumyndband - Svefn og þreyta

You must install the Flash Player to watch this movie online.


Efst á síðu

Símanúmer og aðrar upplýsingar :

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Kt.: 660802-3120 - Afgreiðslutími 08:00 - 16:00


AA +A ++