Efst á síðu

Aðalleiðakerfi:

Efst á síðu

Efni síðu:

Ökuréttindi

Ný námskrá fyrir bifhjólaréttindi. Flokkar A, A1 og M

miðvikudagur 9. júlí 2008 kl. 17:38

Vespa

1. júlí tók gildi ný námskrá fyrir bifhjólaréttindi flokkur A og A1 og réttindi til aksturs léttra bifhjóla flokkur M. Námskráin er unnin af Umferðarstofu í samráði við Ökukennarafélag Íslands.

Námskráin leysir af hólmi eldri námskrá fyrir flokk A sem staðfest var af ráðherra 18. október 2001.

Með námskránni er fyrst og fremst verið að marka námi til réttinda A1 farveg til samræmis við annað ökuréttindanám. Flokkur A1 sem sérstakur flokkur sem hægt er að fá í íslenskt ökuskírteini á grundvelli náms / prófs var tekinn upp í reglugerð um ökuskírteini 17. apríl s.l.

A1 ökutæki eru bifhjól með aflvél sem ekki má fara yfir 125 rúmsentimetra og vélarafl að hámarki 11 kW. Margar "vespur" falla undir þessa skilgreiningu. Í ökuskírteini er þessi réttindaflokkur tilgreindur með gildistíma í neðri bifhjólalínu og fær tákntöluna 72.

Námskröfur fyrir flokk A1 eru þær að viðkomandi skuli hafa lokið bóklegu námi fyrir almenn ökuréttindi og 5 verklegum kennslustundum hjá ökukennara í akstri bifhjóls í flokki A1 sem uppfyllir kröfur sem gerðar eru til slíks hjóls í ökukennslu og ökuprófum. Viðkomandi skal síðan standast bóklegt og verklegt próf. Bóklega prófið verður sambærilegt bóklegu prófi til M réttinda.

Skipulag námskrárinnar er miðað við að bóklegu námi til almennra ökuréttinda sé lokið eða almenn ökuréttindi séu fengin. Stjörnumerktum þáttum í fyrri námskrá (sem voru fengin úr námskrá fyrir almenn ökuréttindi) er því sleppt í þessari námskrá.

Létt bifhjól (flokkur M) er tekið með í þessari námskrá og skilgreindir lágmarkstímar eru 12 bóklegir og 8 verklegir.

Í fræðilegum hluta námskrár hefur verið bætt in þáttum sem ábengingar hafa komið um síðastliðin ár. Í verklegum hluta námskrár hafa verið skilgreindir tímar á hverju þrepi fyrir A, A1 og M ásamt hámarks fjölda ökunema í senn á ökukennara.

Á næstu misserum má gera ráð fyrir breytingum er varða frekari stigskiptingu réttinda, aldurskröfum og prófkröfum til samræmis við 3ju tilskipun Evrópusambandsins um ökuskírteini.


Efst á síðu

Símanúmer og aðrar upplýsingar :

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Kt.: 660802-3120 - Afgreiðslutími 08:00 - 16:00


AA +A ++